Skilmálar

Greiðslur.
Hjá okkur geturu greitt með bæði kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor, eða með millifærslu.
Millifærslur skulu leggjast inn á reikning 0152-26-200206, kt.460120-0550 og kvittun send á netfangið heildsala@mey.is
Hafi millifærsla ekki verið framkvæmd innan við sólahring frá því að pöntun hefur verið gerð er gert ráð fyrir því að hætt hafa verið við pöntun.
Skilmálar og skilyrði.
Mey ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Verð á vöru og sendingakostnaður.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Sendingakostnaður er 1.090 kr.
Ef að verslað er fyrir 20.000kr.- eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður.
Hægt er að sækja pantanir í verslun að kostnaðarlausu.
Afhending vöru.
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti innan tveggja virkra daga frá greiðslu.
Hægt er að sækja pöntun í verslun og er mögulegt að gera það um leið og greiðsla hefur borist.
Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Mey ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Mey til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Gölluð vara.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allann sendingakostnað sem um ræðir.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Vesturlands.
 
Mey ehf
Smiðjuvöllum 17, 300 Akranesi 
heildsala@mey.is
sími: 625-8373